Yfirvöld í Nígeríu hafa staðfest að farþegaflugvél, með 117 manns innanborðs, fórst skömmu eftir flugtak Í Lagos í gærkvöldi. Búið er að finna vélina um 200 kílómetra norður af borginni. Ekki hefur enn tekist að komast að vélinni og því er ekki vitað um afdrif farþega og áhafnar. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737, er í eigu flugfélagsins Bellview Airlines. Hún var á leið til Abuja, höfuðborgar landsins. Tekið af www.mbl.is