Ég lenti í smá umræðum þar sem mér er sagt að það megi fljúga Cessnu eða PA-28 úr hvaða framsæti sem er og hafa réttindalausan farþega í vinstra sæti!

Rökin fyrir að gera þetta var að það væri betra fyrir myndatökumann að sitja vinstra megin í C-172 og í PA-28 sæti flugmaðurinn þá við hurðina.

Ég er nú ekki alveg að kaupa það að þetta megi. Stendur ekki í handbók vélarinnar að lágmarks áhöfn sé einn flugamður og hann skuli sitja í vinstra sæti?

Einhver þarna sem hefur aðgang að Aircraft Flight Manual fyrir þessar vélar og getur kíkkað á þetta fyrir mig!
Chevrolet Corvette