Góðan daginn. Getur einhver sagt mér hvort, og þá hvar, maður gæti leigt flugvél fyrir einkanotkun? Eitthvað eins og Cessna 172 eða álíka fjögurra manna vél.

Málið er það að ég er að klára einkaflugmanninn hjá Geirfugli og vildi gjarnan líta eitthvað út fyrir bæinn með ættingjum og vinum. Undir venjulegum kringumstæðum mundi ég kaupa mér hlut í einhverri vélinni en ég er á leið úr landi í áframhaldandi flugnám (Þyrlan, til að vera nákvæmur) og þess vegna tekur því hreinlega ekki að kaupa sér hlut. Hvert er best að snúa sér í þessum efnum?