Komið sæl

Ég stúdera Flight Simulator frekar mikið og er alltaf að leita að fleiri leiðum til að gera hann skemmtilegri. Ég er ekki mjög klár á hann, t.d. kann ég ekki að stilla inn svona approach/ILS dæmið þarna svo að vélin stilli sig sjálf inná flugbrautina.

Ég er svosem búin að finna að maður gerir það þarna í GPS tækinu en er ekki viss um hvernig. Ég er búinn líka að leita í þarna kennslunni í leiknum en ég bara næ þessu ekki :S.

Getur einhver nokkuð hjálpað mér með þetta??