Loksins er búið að opna Flight simulator server fyrir MSFS 2002 og 2004. Slóðin er fsice.no-ip.biz . Hægt er að tengjast með því að starta Fs leikinn þinn. Velja multiplayer og velja þar join og skrifa síðan slóðina í “IP” og “nikkið” sem þú ætlar að nota. Serverinn er enn þá á byrjunar stigi og ekki er ennþá búið að leysa úr vandamálum með ATC t.d. BIKF Twr og þess háttar. Á meðan það er verður helst að láta vita af ykkur annað slagið gegnum spjallið, en spjallið er notað með því að ýta á enter takkann. Þá ætti að birtast lítill gluggi og þar geturu skrifað. Einnig er hægt að sjá hverjir eru “online” með því að fara á fsice.no-ip.biz í vafranum þínum. Þar sem “serverinn” er ennþá á byrjunarstigi getur verið erfitt fyrir suma að tengjast.

Vonumst til að sjá ykkur.