Sælar/ir.

Ég er búinn að leita nokkuð að góðri síðu með flugvélum fyrir FS2004 en ég fann ekki mikið sem mér leist á.

Þessar fann ég:

FsNordic

Fín síða, vel flokkuð. En mér finnst úrvalið ekki með því bestu þótt gott sé.

Simviation

Fullt að þarna. Frekar illa flokkuð og mikið af ADs.

Kunnið þið einhverjar fleiri góðar? :)

Og síðan er ég búinn að vera leita af Flugfélag Íslands skins á netinu, en ég fann bara Twin Otter sem virkar. Fann einhvern fokker 50 íslenskan sem er bara útlitið ætlað fyrir AI notkun, en ég gat þá keyrt hana áfram.

Takk :)