Sæl veriði.
Ég er með fs2004 í tölvunni hjá mér. Vandamálið er það að þegar ég er að fljúga í skýjum þá höktir allt eins og ég veit ekki hvað. Eins þegar ég tek á loft í skýjuðu veðri. Þarf að hafa few sky til þess að losna við höktið.
Samt er ég með 2,4 Ghz, 512 mb minni og 256 mb skjákort. Hvað gæti verið að?