Sæl verið þið,

Ég var að spá í því hvort það væri alveg dautt að einkaflugmenn sæktust í blindflug? Eða var það aldrei lifandi? :)

Ég myndi t.d. vera til í að læra það (ef veskið og bankinn lofar :)), en það virðist hvergi vera hægt að læra bóklega partinn af því sér (án þess að taka sér heilan vetur og 600 þús. í skólagjöld).

Eins og veðrin eru hér í Íslandi er þetta nokkuð sem myndi gagnast manni talsvert…auk þess sem blindflug hlýtur að gera mann talsvert hæfari í sjónflugi líka…