Góðan dag.

Ég hef nokkurn áhuga á flugi og er að “stúdera” hitt og þetta um flug.

Það er eitt sem ég er að spá í. Þegar flugvél tekur á loft segir flugturninn skömmu síðar að flugtakið hafi verið eitthvað ákveðið númer. Td. “Faxi 27, flugtakið var fjórir þrír.”

Hvað á turnmaðurinn við?

Kveðja, Einn sem ekki er alveg að skilja þetta.