Ég sá kork hérna um daginn þar sem einhver var að gera athugasemd með tenglana hér á þessu áhugamáli sem mun kallast flug. Nú er búið að vinna e-ð í þessu og update-a þá e-ð en icelandair tengillinn var tekinn út. Þá er ég að tala um http://www.icelandair.is/training . Í staðinn er t.d. tenglar eins og Astreus sem er ekkert spennandi að skoða. Þessi vefur hjá Icelandair er einmitt e-ð sem maður á að skoða því þetta er vefur sem skýrir frá þjálfuninni og hlutum tengdum henni. Annars er þetta e-ð “nætur-jóla-gals” í mér. Ég er ekkert að pirrast eða e-ð bara benda á þetta. Annars vona ég að allir hafi það gott um jólin og reyni að fljúga eitthvað.