Hvað vita menn um þennan nýja flugklúbb? Er þetta eitthvað batterí sem er hugsað eins og Geirfugl eða á þetta að verða einkaflugklúbbur gamalla flugjaxla? Allavega virðist þetta mjög spennandi og það væri mjög gaman ef þetta yrði nú til þess að efla einkaflugið á Íslandi og stuðlaði að nútímavæðingu íslenska einkaflugflotans. Hvað finnst mönnum um stöðu einkaflugsins á Íslandi almennt?