Nú frétti ég að aðalfundur FÍE yrði á laugardaginn 15. nóvember. Ég er félagsmaður í FÍE en hef ekki fengið aðalfundarboð, er ekki málið að hafa fundarboðið aðgengilegt hér á Huga? Ég hvet alla einkaflugmenn til að mæta á fundinn og hjálpa til við að virkja félagið og sýna stjórnarmönnum stuðning og aðhald í leiðinni. Gaman verður að hlusta á skýrslu formanns hvað áætlað er að gera á næstu árum, á t.d. að halda áfram að láta félagsheimilið okkar grotna niður en á meðan búið er að snyrta í kringum flugskýlin þá er húsið okkar að eyðileggjast á sama tíma þar sem ekkert viðhald hefur verið á því.

Látum sjá okkur á laugardaginn kemur.
himnahaukurinn.