Fínt væri ef einhver gæti skrifað grein um hvernig maður eigi að bera sig að og hvað beri að varast þegar menn eru að fljúga og skoða eldgos. Það væri líka allt eins fínt ef einhver gæti bara bent á grein sem hefur verið skrifuð um þetta. Þetta er örugglega eitt það flottasta sem maður getur orðið vitni að þegar maður er að fljúga en ekkert var farið í þetta þegar ég var að læra einkaflugmanninn svo það væri frábært ef einhver reynsluboltinn gæti séð sér fært um að skrifa nokkrar línur um þetta mál.