Flugklúbbur Mosfellsbæjar mun standa fyrir lendingarkeppni fyrir einkaflugvélar á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ laugardaginn 6. september. Um er að ræða seinni hluta Silfur-Jodel lendingakeppninnar sem haldin er ár hvert á Tungubakkaflugvelli. Keppnin hefst klukkan 13:00 og er öllum flugmönnum frjálst að taka þátt. Skráning er á staðnum og er skráningargjald 1.000 krónur. Keppendur eru vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega. Ef ekki verður nægjanlega gott flugveður laugardaginn 6. september þá frestast keppnin fram á sunnudaginn 7. september.



Svo er bara að fjölmenna á Tungubakka !