Getur einhver sagt mér hvers vegna Flugmálastjórn Íslands er með svona hátt verðlag á öllum helv… pappírunum sem eru, að virðist vera órjúfanlegur hluti af Flugnáminu?

Á sú leiðinda stofunun ekki að vera í þjónustu við okkur og styðja við bakið á verðandi flugmönnum þessarar þjóðar en ekki haga sér eins og einhver fasistastofununin þar sem allt er bannað nema það sé leyft og þá borga hátt í 3500-7500kr fyrir það.Er flugnámið ekki nógu dýrt fyrir?

Er hún ekki orðin einum of valdamikil? og hún ræður öllu. Hvernig má þetta vera?