Ég sit hérna í mestu makindum heimavið á föstudegi, flakkandi um Huga og heima hlustandi á BIRK í gegnum skannerinn.

Stundum koma þó samskipti í gegnum skannerinn sem geta verið brosleg, sem dæmi þá var ég rétt í þessu að heyra ein slík.

Íslandsflug XXX: tilbúinn með Wiskey ……. sem sagt information Wiskey.

Turn: Ég ætla rétt að vona að þið séuð bara með information wiskey haha - það er að koma nýtt ATIS með nýju QNH sem er 991.

Íslandsflug XXX: náði því… þetta ætlar að verða einn af þessum dögum.



PS; rétt um það bil sem þeir voru að taxera í brautarstöðu (KL 13:21) þá koma þau dimmustu él sem ég hef séð í dag a.m.k. og þeir eru enn að bíða.

Kveðja
Proxus
—————————-