Eins og fram hefur komið á korkum ákvað Flugmálastjórn að 
banna einka- og kennsluflug frá Reykjavíkurflugvelli 
síðastliðinn sunnudag eftir að 15 af 23 flugumferðarstjórum á 
vakt tilkynntu veikindi.  Þetta gerðist á björtum og fallegum 
sunnudegi í frábæru flugveðri.  Þetta var einn af þessum 
dögum þegar loftið yfir Íslandi ætti að vera fullt af 
einkaflugvélum að njóta veðursins, en nú var það stöðvað 
vegna kjaradeilu flugumferðarstjóra.
Nú ætla ég ekki að efa það að allir þessir flugumferðarstórar 
hafi fengið svona líka bráðsmitandi flensu, en mér finnst 
viðbrögð FMS skrýtin.  Hefur FMS rétt til þess að gera svona 
upp á milli áætlunarflug og einka- og kennsluflugs ?   
Samkvæmt reglum ber að veita öllum loftfförum í íslensku 
loftrými flugupplýsingaþjónustu, og er hvergi tekið fram að 
sum loftför skuli hafa forgang að þeirri þjónustu.  Nú kom upp 
sú staða að FMS hafði ekki mannskap til að halda úti fullri 
þjónustu og klippir þá alveg á allt einkaflug, og það þó 
sjónflug í loftrými D þurfi nánast enga þjónustu.
Auðvitað eru flugfélögin fljót að væla um tapaðar tekjur og 
milljónakostnað, en það er ekki hægt að reikna með því að 
svona stopp kosti einkaflugið ekkert.  Hver einasti 
góðviðrisdagur sem einkaflugið er grándað þýðir tapaðan 
flugtíma.  Það þýðir að menn missa æfingu, flugnemar missa 
áhugann og tilvonandi farþegar missa af tækifæri til að sjá 
Íslenska náttúru skarta sínu fegursta.  Þetta er eitt af því sem 
er að drepa einkaflugið.  Þegar menn lenda alltaf í öðru sæti, 
fá ekki að stunda lendingaræfingar, eru læstir úti af 
flugvellinum, fá ekki að lenda í Vestmannaeyjum, eða hvað 
það nú er, þá hætta menn að standa í þessari vitleysu.
Kjaradeila flugumferðarstjóra er skandall, og það ætti að vera 
löngu búið að leysa þá deilu (helst með því að rassskella 
flugumferðarstjóranna, en látum það liggja á milli hluta).  Það 
er hins vegar engin réttlæting á svo harkalegum viðbrögðum 
sem að banna allt einka- og kennsluflug.   Síðasta sumar var 
Vestmannaeyjaflugvelli lokað fyrir einkaflugi um 
verslunarmannahelgina.  Í gær var Reykjavíkurflugvelli lokað. 
Þetta þykir ekki fréttnæmt, og ef við hreyfum okkur ekki, þá 
endar það eins og í Evrópu þar sem einkaflug er svo gott sem 
bannað.
Ég sendi flugumferðarstjórum heillaóskir og von um skjótan 
bata.
Kristbjörn