Þyrla togar flugvél úr sjónum. Cesnna 172 flugvél nauðlenti á grynningum í gær þegar flugmennirnir sem voru reyndir menn á tvítugsaldri reyndu að forðast árekstur við hóp fugla og hugsanlega ofrisu vélinni þannig að hún lenti í sjónum.

Flugmennirnir sluppu með minnháttar skrámur og voru hífðir um borð í lögreglu þyrlu.

Stuttu seinna byrjaði að flæða að og vélin fór á kaf þannig að aðeins stélið stóð upp úr. Vélinni var síðan komið á þurrt með aðstoð þyrlu. Flugvélin var 5 ára gömul Cessna 172 metin á um 18 milljónir króna.

Flugmennirnir voru í þjálfunarflugi og voru í um 30 metra hæð þegar þeir flugu inn í flokk fugla og telja að þegar þeir reyndu að forðast fuglana hafi vélin ofrisið þar sem hún síðan missti flugið og lenti í sjónum á litlum hraða
Chevrolet Corvette