Sæl verið þið.
Ég er með spurningu varðandi þetta kort þarna ISIC. Þetta er svona afsláttar kort fyrir námsmenn um allan heim. Ég pantaði þetta kort á netinu og fékk síðna kortið sent. Ég fékk einungis kortið sjálft og ekkert með því. Þ.e.a.s pin nr. eða slíkt. Síðan er einhver 12 stafa talnaruna á því sem ég veit eiginlega ekki hver er og það er einn bókstafur fyrir framan, og einn fyrir aftan. Þar sem ég veit ekki nr.ið get ég ekki lagt inn á það, og þar sem ég veit ekki pin nr.ið þá get ég ekki farið með það í hraðbanka. Ég veit ekki einu sinni í hvaða banka þetta er.

ÉG var því bara að velta því fyrir mér hvort að þetta tengdist öðru korti sem ég væri með. Því konan sagði mér að visa væri með þau fríðindi að fyrst ég hefði það kort fengi ég þetta frítt.

Og þá spyr ég bara hvort einhver hefur hugmynd um þetta kort og hvernig því er háttað.
Það er enginn tilgangur með lífinu ….það ert þú sjálf/ur sem skapar hann