ég tek það fram að til þess að kostina sé hægt að nýta verðum við auðvitað að gefa okkur það að með fjárstjórn fari hæfir einstaklingar.

Kosturinn við að halda eigin gjaldmiðil er möguleikinn á ódýrara framboði af peningum.

Verðbólga kemur til vegna þess að framboð á peningum eykst hraðar en framboð á gæðum.

Ef peningar eru prentaðir fyrir og fjárfestir inn í hagkerfið sem langtíma virði en ekki skuld eins og í formi vega og sjúkrahúsa, þá skapar það ekki verðbólgu. vegna þess að gæðin aukast jafnt á við framboð peninga. Ríkið g´ti þannig reiknað út aukninguna á gæðum í hagkerfinu og eytt peningum af færni út í hagkerfið sem nemur aukningunni á gæðum.

Hins vegar ef að verðbólga myndi aukast vegna t.d óhjákvæmilegra afskrifta og ónákvæmra reikninga, þá er mjög auðvelt að koma til móts við það með skattalagningu. Kaupmáttur er því sá sami hvort sem verð bólga eykst um 10% eða ríkið skattleggur um 10% og tekur það fé úr umferð. þannig gæti ríkið fjármagnað sig mun ódýrara en það gerir nú vegna þess að það þyrfti ekki að borga vextina sem féllu til ef þeir tækju lán sem myndu leiða af sér að skattar þyrftu að vera enn hærri.

ókosturinn við að reka egin gjaldmiðil er hins vegar veikleikinn sem liggur í smæð hagkerfisins sem býður upp á misnotkun erlendra spákaupmanna sem gætu sumir hverjir eða nokkrir með samanteknum ráðum leikið sér að því að græða á Krónunni (hvað svo sem viðkomandi gjaldmiðill gæti verið kallaður) á kostnað almennings með því að kaupa upp krónur í miklu magni á löngum tíma sem myndi styrkja krónuna. Kaupmennirnir myndu síðan selja allar krónurnar í einu sem gæti valdið ótta á kerfinu sem samverkandi myndi hafa þau áhrif að verðgildi krónunnar myndi falla meira en sem nemur verðaukningunni sem kom til við kaupinn. Gróði kaupmannanna lægi í því að kaupa sinn hlut aftur á lægra gengi og leika sama leikinn aftur. Gróðinn yrði enn meiri ef seðlabankinn hefði vegna svo sterkrar krónu þurft að fara í að prenta fleiri krónur nema ef seðlabankinn myndi auka framboð af krónum með því að prenta fyrir kaupum á erlendum gjaldeyri til styrkingar varagjaldeyrissjóðs.

Annar ókostur getur verið sá að fólk getur átt erfiðara með að átta sig á raunverulegu virði innfluttra vara þannig að innlendir birgjar og verslanir geta skapað tilbúna verðbólgu með því að mjólka seðlabankann með því að verðleggja vörur vísvitandi of hátt svo að Sb neyðist til að auka framboðið af peningum sem nemur. Gróði byrgjanna liggur í að þrátt fyrir aukna verðbólgu þá eykst hlutfallið af peningum sem kemur til þeirra.

þetta eru hins vegar afleiðingar þeirraar staðreindar að peningar eru í dag skuld ef að allar skuldir væru greiddar þá væru engir peningar til. Ef þetta er einhvað að velkjast í vafa fyrir þér endilega lestu þessa grein eftir mig; http://arinol.blog.is/blog/arinol/entry/585138/
eða horðu á þessa heimildar mynd: http://www.sprword.com/videos/moneyasdebt/
fyrir enn frekari upplísingar, vinsamlegast heimsækið heimasíðu The British Association for Monetary-reform: http://www.monetaryreform.org/moneytextbook/index.htm

Eða einfaldlega spyrjið mig :P
Nei bara pæling.