Krúttlegur fiskur.
Þetta er Agassizi´s dwarf cichlid. Ég á svona par og það er geggjað gaman að þeim… Þetta eru mjög rólegir og yfirvegaðir fiskar, synda hægt og rólega um og elska holur, hella og sprungur þar sem þeir geta falið sig. Þetta er mynd af karlkyns síkliðu, en kerlingnin er gul með svarta rönd eftir miðju. Kerlingin hrygnir undir eða inn í einhverjum felustað og ver hrognin og felustaðinn af mikilli hörku. Hún verndar afkvæmi sín alveg í tvær vikur en þá verða þau að bjarga sér sjálf. Hún nennir samt ekki alltaf að koma upp seiðum og á það til að éta hrognin áður en þau klekjast út
Þetta er Gnathonemus petersii, örðu nafni fíla fiskur. fáar tegundur eru til og verða þeir flestir um 20-30 cm, raninn á fisknum er mjúkur og er notaður til að finna mat í sandinum þó eru ekki allar tegundir með rana