Sælt verið fólkið, mér datt í hug að það væri ekki ósniðugt að setja inn auglýsingu á huga þar sem mikið af áhugafólki um öll heimsins mál, og þar á meðal fiskum, er hér samankomið.

Þannig er mál með vexti að ég er að rækta og selja gúbbý fiska.

Þeir sem eru ekki vanir fiskum en langar að prufa mæli ég eindregið með gúbbý fiskum. Þeir eru fallegir fiskar sem þarf ekki að hafa mikið fyrir. Aðeins er nauðsynlegt að vera samviskusamur í matargjöfum og vatnsskiptum.

Fyrir áhugasama bendi ég á auglýsinguna sem ég setti inná fiskaspjall: http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=7707 eða að hafa beint samband við mig hér á huga, senda mér póst á gudrunbirna87@gmail.com eða hringja í mig í síma 866-2050.

M. kv.