Í gærnótt dreymdi mig að ég væri að horfa á fiskabúrið mitt, en svo allt í einu var komin annar ókunnugur fiskur. Ég get sko sagt ykkur það að þar var ekki kátína þar á bæ meðal hinna fiskanna. Svo allt í einu fór hann að tala við mig fiskfjandinn, og vildi ekki vera í búrinu svo hann flutti í sturtuna hjá mér þar sem hann sat makindalega í grjótstóli og sagði mér að skrúfa frá sturtunni fyrir sig, þar sem þetta væri nú sturta gegni nú ekkert annað! En jæja, ég skrúfaði frá fyrir fiskalinginn sem leit út eins og svört gedda með beittum vígtönnum. Áður en ég setti hann samt í sturtuna, ætlaði ég að setja hann í gullfiskakúluna mína, en hann þverneitaði og varð brjálaður af reiði. Þá fór ég að gráta og fór með hann þá í sturtuna.

mynd af geddu;
http://www.instansia.com/company/fisk/gedda.jpg

Þetta var nú skrýtinn draumur hjá mér, vildi bara deila þessu með ykkur (: