Smá Flip :) Oky fyrir nokkrum vikum fór ég að gramsa upp í skápum og fann þar gamla 20 - 25L gler búr sem ég hafði búið til fyrir löngu og stóra utaná liggjandi vassdælu og áhvað að setja þetta upp og ég áhvað síðan að mig langaði að prufa að setja eitthvað sjáar líf í þetta búr þannig að ég skelti mér í ruslaskápinn í eldhúsinu og fann þar nokkrar 2L flöskur og poka sem ég setti þær í og þar sem ég á heima við sjóinn þá rölti ég bara út að sjónum og fylti þar nokkrar flöskur af sjó til að setja í búrið

Þetta tók svona 2 - 3 ferðir :) þangað til það var orðið fullt, svo fór ég seinna þegar það var komin fjara til að velja mér einhverja flotta steina og smá gróður :D og kom því fyrir í búrinu svo fór ég að hugleiða hvaða lifandi dýr ég ætti að hafa í búrinu og mér fanst frekar ólíklegt að ég mundi finna einhverja fiska þarna í fjörunni þannig að ég áhvað að setja krabba í búrið :D

Byrja ég þá að hugleiða hvernig ég á að finna krabba :| ?, ég fer út í bílskúr og finn þar stál net sem ég á, tek það og byrja að mæla það og klippa niður og festa saman með strapp böndum og setti flotholt á það sem var 0.5L flaska og þá er komin þessi fína krabbagildra :D svo tek ég smá fiski bita úr fristinum og set inn í gildruna og smá stein og labba með hana í fjöruna og læt hana vera þar í ~1 og hálfan dag (myndin er af gildrunni sem ég bjó til)

Fer síðan að gildrunni og opna hana og er hún ekki bara stút full af kröbbum :D en þeir voru allir svo stórir þannig að ég slefti þeim bara og fór eitthvað að leita mér að nokrum snígglum til að setja í búrið og þá finn ég einn lítinn krabba undir einum stein, ég set hann í box sem ég er með og fer að leita af fleirum, finn þar 3 í viðbót og skelli þeim í boxið (svolítil tímasóun þessi gildra ;D ) rölta svo heim og skelli þeim í búrið

Þeir voru alveg að fíla sig vel í búrinu og ég var alveg að fíla í tættlur að filgjast með þeim labba um búrið og éta silunginn sem ég bitaði niður fyrir þá :)og voru þeir alveg vinsælir í partíum sem ég hélt :) samt aðalega hjá strákum stelpur sögðu oftast bara “ojj” Hahaha :D

En síðan hafði ég ekki tíma fyrir þá lengur þannig að ég þurfti á endanum að sleppa þeim og taka saman búrið :(

Þvímiður var ég ekki búinn að taka mynd af búrinu þegar allt var tilbúið þannig að ég get ekki set inn mynd af því :/

Langaði bara að deila þessu með ykkur :)

En annars er ég núna að leita mér að gefins/ódírum blá humrum til að setja í búrið :P
Kv. Squinchy