Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

Þetta ár hefur verið það besta í sögu huga. Þetta áhugamál var sett upp á fyrrihluta ársins og þá tók kev við adminstöðunni og hélt því ágætlega uppi. *kev fær klapp á bakið*
Síðan nokkru seinna urðum við sasssa adminar og uppúr því kom fiskafár á huga. 4 af 12 greinum á forsíðu frá fiskum.
Einnig setti ég upp fiskavin vikunnar, fiskabúrið og fisk mánaðarins sem hafa fengið góðar undirtektir.

Endilega haldið áfram á fullu að senda inn efni.