Já gott fólk, til þess að vekja ykkur aðeins hef ég ákveðið að halda smá keppni hérna.

Vinningurinn er ekkert annað en eitt eintak af FFXIII fyrir PS3 þegar hann kemur út, sem verður fyrri helming 2008.

Sú manneskja sem kemur sér sem næst 2000 stigum í “Ofurhugar” á Final Fantasy með heiðarlegum hætti og halda sér þar eða ofar þangað til FFXIII kemur út á íslandi, mun fá frítt eintak.

Þetta er keppni sem ég er að halda, og kemur huga ekkert við.

Hægt er að gera margt til að fá stig, senda inn greinar um FF1-13 eða Kingdome Hearts, Chrono Cross, Chrono Trigger, FF Online, eitthvað af “Mana” leikjunum frá S-E sem dæmi. Þið getið sent inn myndir, þó ekki sömu myndina oftar en einu sinni. Senda inn kannanir og margt fleira.

Ef notandi svindlar sér leiðir, með því að senda inn marga korka um ekki neitt, eða einhverja heimskulega hluti, eða eitthvað þvíumlíkt, mun vera tekinn úr keppninni.

Ég vill byrja keppnina núna, með góðum fyrirvara svo notendur hafi ágætis tíma til að byggja sig upp stigann.

Með von um góðar undirteknir, og gangi ykkur sem best!

Kveðja, Englaryk.
Beer, I Love You.