Djö! Ég var í gærkveldi nýbúinn að komast yfir the calm lands og svo vann ég defender x. Þá hafði ég mér við hlið hvurnig átti að ná í youjimbo, semsagt að fara inn í einhvern helli þarna. Ég fór inn í hellinn, fylgdi leiðbeiningum og endaði svo með því að ég komst að honum. Ég vann hann og fór svo inn í herbergið þar sem maður býður í hann (þarf maður virkilega að kaup ann á minnst 200000 gil?!!?!)en ég var bara með 180000. Þá varð ég móðgaður mjög og fór að berjast við fiends út um allann helli og fór alltaf með reglulegu millibili í “the bidding room”. Ég var búinn að fara 3 eða 4 sinnum og var að koma út úr því (var kominn næstum því að opinu á hellinum) þegar myndavélin sýndi langt inn eftir hellinum þar sem gamall kall (ekki ósvipaður meister mika nema í grænum kyrtli)kom labbandi. Þegar hann kom að tidus varð hann eitthvað æstur og fór að gera allskonar handahreyfingar og allt í einu var youjimbo standandi fyrir aftan hann. Nema að hann var mikið dekkri en sá venjulegi. Maður gat þá valið um hvort maður vildi fara og vesenast í varppointum eða berjast. Ég valdi náttúrulega að berjast og kom þá *ambushed* og youjimbo fékk að byrja. Hann sendi hundkvikindið sitt á einn kallinn minn og gerði það hvorki meira né minna en 99999 í damage! Svo tók hann hnífana sína og henti þeim í þann næsta…99999 damage! Svo sendi hann hundinn aftur og gerði 99999 damage. Game over.

CHRIST!!! Er hægt að vinna þetta gerpi? Hver er þessi summoner eiginlega?! *sniff sniff*