Hann er loksins kominn út. Best að hefja umræðu þá! Ertu búin/nn að kaupa hann? á hvaða tölvu? Hvernig líst þér á hann eins og er?

Í mínu tilviki er ég bara búinn að spila í um það bil 5 tíma. Byrjunin er ein sú magnaðasta sem ég hef séð í leik og er þetta svo sannarlega flottur leikur, því má ekki neita. Hann er hægur að byrja, þ.e.a.s með bardagakerfið og öllu sem því tengist, sem er ekkert slæmt þess vegna, enda á þetta að vera langur RPG(ish) leikur. Ég á pínu erfitt með að venjast kamerunni, enda finnst mér hún vera frekar ‘wobbly’ og hún getur ekki verið á þeim stað sem ég vil hafa hana á.

En já, ég er ennþá bara kominn stutt og líst bara nokkuð vel á. Er sérstaklega ánægður með kaupinn því þetta er klárlega það skásta sem til er fyrir þessa kynslóð leikjatölvna hvað svona RPG (ish) leiki varðar.. Allt of mikið af gráum og brúnum skotleikjum til.