Það væri fínt að fá upplýsingar frá einhverjum sem hefur stúderað VII leikina betur en ég.

Í byrjun leiksins segir Cloud frá því hvað gerðist í Nibelheim 5 árum áður við Tifa, Red XIII, Barret og Aeris, og segir hana frá sjónarhorni Zack (þ.e.a.s. sem SOLDIER).

Þegar lengra er komið á leikinn uppgötvar hann sínar raunverulegar minningur frá Nibelheim (og aðrar) sem eru svipaðar og hinar, en bara frá öðru sjónarhorni og nokkur smáatriði öðruvísi.

En spurningin mín er þessi: Ef Tifa sá aldrei Cloud þegar Sephiroth kom í Nibelheim (allavega ekki sem sá sem Cloud sagðist vera), af hverju minntist hún þá ekkert á það í Kalm?

Það getur verið að ég þurfi að taka þennan leik aftur.