Ég vil benda á könnun sem við stjórnendurnir höfum efnt til um breytingar á áhugamálinu. Við höfum ýmsar hugmyndir um róttækar breytingar, m.a. á nafni áhugamálsins og þar með umfjöllunarefni þess þannig að það fjalli frekar um annað hvort Square leiki eða jafnvel japanska RPG leiki almennt frekar en einungis Final Fantasy.

Við viljum þó ekki ákveða þetta sjálfir heldur í sameiningu með notendum áhugamálsins til að hafa þetta svolítið lýðræðislegt. Endilega svarið hreinskilnislega og leggið til ykkar hugmyndir, skoðanir, pælingar og spurningar í þennan þráð.

Fyrir hönd stjórnenda /FinalFantasy