Jæja, fyrir svolitlu síðan skrifaði ég kork um hvað mér fannst FFXII ekki standast undir væntingar. EN! Hugarfar mitt breyttist, ég kom fullur heim um daginn og eyðilagði playstation tölvuna mína óvart. Var leikjatölvulaus og spilaði aðallega Commandos 2 á PC á meðan. En fljótlega fékk ég leið á honum og langaði í Playstation aftur. Svo ég skellti mér og fékk eina í láni hjá vini mínum, smellti fyrsta leiknum sem ég sá í og það var FFXII. Spilaði hann aðeins og þá fattaði ég seinna, að ég hætti að nenna að spila hann rétt áður en leikurinn varð skemmtilegur! Varð náttúrulega soldið pirraður yfir því og ákvað að skrifa kork um það að þið sem lentuð í sömu aðstæðum og ég, haldið áfram að spila. Hann er ekki lélegur, bara lengi að byrja.
01101100 01101111 01101100 00111111