Þrátt fyrir samkomulag um að gefa hvort öðru ekkert í stúdentsgjöf, þar sem við erum að fá gríðarlegar gjafir frá foreldrum okkar (utanlandsferðir og svona :D), þá skellti stelpan mín sér á E-Bay og fann nýtt eintak af Final Fantasy IX á PAL útgáfu, sem shippast til Íslands. (þessi samsetning er nær ófáanleg).

Mitt eintak hefur verið rispað síðan ég veit ekki hvenær og er nær óspilandi.

Þetta er uppáhalds leikurinn minn EVER og skiptir mig gríðarlegu máli og ég get ekki beðið eftir að hann kemur til landsins, eins og ég sé að bíða eftir gömlum vin :)

Allavega. Fyrir fólkið hérna sem leggur álíka mikið sentimental gildi við þennan nær ófáanlega leik og ég:
“Hvað ætti ég að gefa henni á móti sem að endurspeglar hennar gjöf?”

Hvað mynduð þið gefa hvað varðar fjárhæð, til að enda slík gjafaskipti á sléttu :)