Ég hef unnið FFX einu sinni en ekki alveg 100%. Ég náði ekki að klára stað sem heitir Omega Ruins. Ég náði að komast aðeins í gegnum hann og að fyrsta endakallinum þar. Ég vann hann léttilega en síðan hélt ég áfram og alveg þangað til að ég var kominn að síðari endakallinum sem ég held að hafi veri Omega kallinn. Allaveganna ég var með ALLA aeonana og hlut sem ég fann sem hét Dark Matter sem meiddi óvininn um svona 120.000 en hann dó ekki. Svo notaði ég Magus Sisters mikið og meiddi hann MIKIÐ en það virkaði ekki. Svo notaði ég nokkra fleiri aeona en síðan dó ég. Hann virtist bara vera ódrepandi ég held að ég hafi meitt hann um svona 250.000 HP. Náði einhver að klára þennan stað? Ef svo er getur sá aðili sagt mér hvernig hann/hún fór að því?