Gott, ég náði athygli ykkar.
Hér á huga þá eyði ég mestum tíma mínum á Final Fantasy. Ég hef tekið eftir því að andrúmsloftið hér er alger hörmung. Fólk er að kalla einhverja fífl út af einhverri lélegri grein. Það sést greinilega á textanum í einni nýlegri grein hér(Þið vitið um hvað ég er að tala)að höfundurinn er þó nokkuð ungur og kann eflaust ekki að skrifa góðar greinar og þið ráðist strax á hann. Á endanum brýst allt út í eitt risastórt rifrildi. Þið gætuð bara litið fram hjá greininni og farið að lesa eitthvað annað en þið ráðist beint á greinina. Ég hef bara eitt að segja við ykkur, Þroskist!!!!

Bara eitt enn. Ef ykkur finnst þessi grein heimskuleg, farið þá bara að mínum ráðum og lítið í burtu.