Þetta er ekki endilega víst en talið mjög líklegt. Það kom frétt um þetta og allt í V Jump.

FF XII: Revenant Wings (Nintendo DS)
Þetta mun væntanlega vera prequel leikur og mun skarta Vaan og Penelo sem persónum í yngri útgáfu. Leikurinn mun fókusa á sky pirates.
http://img147.imageshack.us/my.php?image=scan01pk0.jpg

KH II: Final Mix (PS2)
Þið eruð náttúrulega flest ekki búin að fá KH II en samt eru þetta fréttir. Líklegt er að þessi leikur muni koma og hafa lengra leynimyndaband á endanum, mushroom óvini og endakalla bardagana úr Chain of Memories (annað hvort það eða CoM verður endurgerður á PS2 ég er ekki viss.) Leikurinn mun kanski koma út á ensku ólíkt KH 1: Final Mix.
Svo kemur kanski DS KH 2.5 leikur en það er ekki jafn líklegt og hitt fyrir ofan.

Þetta mun allt (eða flest eða eitthvað þannig) útskýrast á TGS.

Takk fyrir það.

Bætt við 15. september 2006 - 16:40
http://www.kh2.co.uk/image.php?view=kh2/fm/images/img0002.jpg
KH II: Final Mix Screen Shot. Vinsamlegast ekki koma með hitt screenshotið sem er komið á netið því það inniheldur nokkurskonar spoiler. ;)