Varð að koma smá frá mér, en eins og er sit ég í mínum “góða” tölvustól og er að spila FF IX og hlusta á fake tales of San Francisco með Artic monkeys.

En ég er bara að levela mig smá upp með freyu hef notað hana lítið, en zidane er lvl 38 og einnig vivi og Eiko 33 og Freya 30.

Ég labba um í smástund og kemur elskan mín, Nova dragon(er það ekki drekinn fyrir utan daguerro?).
En allavega, er að slást eins og venjulega, ákveð svo að gera jump með freyu, og drekinn átti svona 2000 eftir, en á meðan freya er í skýjunum að leika sér með spjótið sitt gerir drekinn Thundaga á allt partýið og allir deyja!!! Nema að sjálfsögðu Freya sem er upp í skýjunum(cloud:P) og loksins gerir hún spear og drepur drekann!

Svo er ég bara JESS hjúkkett og svona, en svo kemur EXP glugginn, en þá sé ég að Freya fær 35208 EXP alveg ein!!! Allur ágóðinn beint til hennar takk fyrir og fer hún upp um 5 lvl s.s lvl 35.

Varð að koma þessu frá mér því mér finnst viiirkilega töff að levela um 5 level!