Mig langar til að hefja umræðu um dauða Aeris. Var það í lagi að hún dó? Hefði það verið betra ef að það hefði verið hægt að lífga hana við?

Sjálfum finnst mér að það hafi verið mjög sorglegt að hún hafi dáið. Hún var svo lífleg og skemmtileg. En mér finnst samt ekki að það ætti að vera hægt að lífga hana við. Það myndi einfaldlega eyðileggja söguþráðinn.