Fyrir svona ca. tveimur árum fann ég fanfig á netinu sem einhver stelpa hafði skrifað sem gerðist í FF8 heiminum og fjallaði um ástarsamband Zell og Aya (the library girl with the pigtail úr einu combat king sidequestinu). Þessi saga er algjör snilld dauðans, sú langbesta sem ég hef lesið um final fantasy leik. Hún er með eindæmum vel skrifuð og söguþráðurinn er skotheldur út í gegn.

Svo gerðist það fyrir nokkrum vikum að ég mundi allt í einu eftir henni og fann hana aftur með hjálp google. Ég las hana aftur og vá maður, hún er jafnvel betri en þegar ég las hana fyrst. Hún heitir “Am I too late to love you?” og er alveg slatti löng, sjö kaflar eða svo. Hún er, eins og nafnið bendir til, ástarsaga en er samt sem áður betri en mjólk og allt það.

Hérna eru kaflarnir í réttri röð:

http://www.geocities.com/zell808/aitltly1.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly2.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly3.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly4.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly5.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly6.html
http://www.geocities.com/zell808/aitltly7.html

Njótið vel