Ég hef spilað Final Fanatasy VII þó nokkrum sinnum í gegn og ég hef alltaf pælt hvort að gaurinn sem er veikur og merktur með númer í Sektor 7 hafi einhverja merkingu aðra en fyrir þá sem hafa spilað leikinn áður og vita hvað númerinn merkja. Svo fór ég að skoða gaurinn og tók eftir því að undir húfuni hans skín í kolsvart hár. Kolsvart hár eins og gamli vinur Clouds hann Zack hafði.
Svo seinna í leiknum eftir að Sephiroth er búin að kalla alla þá sem bera Jenova frumur sama til “The Reunion” þá getur maður farið aftur til Midgar og inn í rörið. Maðurinn með svarta hárið er farinn. Svo ef maður talar við einn gaur þarna þá segir hann manni að gaurinn hafi farið muldrandi “reunion….reunion.” Ég er að pæla hvort að þetta hafi verið Zack og ef svo er er ég frekar vonsvikinn yfir því að maður fékk ekki að vita meira um hann.

Bara smá pæling…