Sephiroth er að mínu mati besti óþokkinn í Final Fantasy seríunum. Hann var ekki bara svöl persóna heldur bjó hann yfir mikilli dýpt, þótt margir skilji ekki hvað ég á við. Hann hafði góða sögu á bakvið sig og það var alltaf svo spennandi að vita hver hann var í raun og veru. Maður vissi nefnilega ekkert um hann nema það að hann var frægur foringi í her einum og þótti bera af í bardögum. En þegar lengra á leikinn var komið kom í ljós að hann var ekki allur þar sem hann er séður. Ég ætla ekkert að birta einhverja spoilera hérna og eyðileggja ánægjuna fyrir öðrum að spila þennan leik en ef það eru einhverjir sem telja sér leyfinlegt að gera það þá mega þeir það fyrir mér. En svo þið vitið öll hver Sepherioth er þá ætla ég að segja aðeins frá honum.

Sephiroth(stundum kallaður Sephiros eða Sefirosu) er fæddur stríðsmaður. Hann er með sítt hár, grátt á lit, og er vopnaður mjög löngu sverði sem kallast Masamune. Hann er sá eini sem getur stjórnað þessu sverði og á auðvelt með að höggva mann og annan í tvennt með því. Hann er með græn maka augu(það er sérstök tegund af augum í þessum leik. Aðalpersónan er einnig með þannig. Það er vegna makka mengunar eða geislunar. ShinRa hermenn eru þannig). Sephiroth er með topp einkunn hjá SOLDIER samböndunum(sem gerir hann einn af öflugustu mönnum veraldar). Hann er klæddur í leðurfatnaði(hljómar GAY en kemur ógeðslega vel út. Hann er mjög svalur). Íklæddur í búningi sínum og vopnaður Masamune er Sephiroth reiðubúinn að takast á við skapara sína og ná fram hefndum….. hví hann gerir það er fyrir aðra að upplýsa.

Ég læt eina flotta mynd fylgja af honum í kaupbæti sem líklegast allir hafa séð:)

kveðja rampage