Mér sýnist að allir eru alltaf að nota Yojimbo í FFX til að drepa alla fjára í leiknum. Persónulega vil ég ekki sjá Yojimbo. Ég vil nú hafa smá challange. FF eru nú ekki erfiðir nema þegar kemur að svona Weapon sidequests eða svona sterkum óvinum. Hvar í ósköpunum náiði í allan þennan pening fyrir Yojimbo? Mér finnst mjög erfitt að fá slatta af penign í FFX. Fariði eftir hvern einasta Dark Aeon að safna pening í marga daga til þess að geta drepið næsta aðalóvin í leiknum með Zanmato? Reyndar á peningur ekki að skipta máli varðandi Yojimbo. Þið fáið ákveðin stig fyrir að nota hann sem lækkar peninginn sem þarf til að fá Zanmato. Ég skal viðurkenna það að ég er ekki búinn að vinna að því neitt að drepa Dark Aeona en það síðasta sem ég mundi nota á þá er Zanmato. Yojimbo er töffari með Kozuka, Wakizazhi og Daigoro en Zanmato eyðileggur hann maður. Það hefði verið í lagi að hafa töff katana sem drepur venjulega óvini en ekki eitthvað ultimate, life-cleaving ultimate vopn frá hel****.

Þetta er bara svona vopn sem maður freistast í að nota en fær svo samviskubit seinna yfir að hafa ekki unnið leikinn án þess að slátra öllum með Zanmato. Ég vil aldrei sjá Zanmato aftur í lífi mínu.