Þvílík snilld, þvílík snilld.

Flestir muna eftir korknum mínum um að mig vantaði Malboro Tentacle og DarkSkin sagði að ég ætti að hanga á Island nearest Heaven en ég gafst upp á því, Odin kom bara á hinum köllunum (þegar hann kom, þ.e.a.s.) en getiði hvað.

Ég var búinn að gefast upp á því að fá Malboro Tentacle. Ég var bara að þjálfa Selphie aðeins, hún var bara í lv. 32 meðan Quistis var í lv 87 (Rinoa, Squall og Zell í lv 100) og var á Island nearest hell, þar er meira úrval óvina og það eru meiri líkur á 1000+ exp., og var búinn að þjálfa Selphie upp um 15 lv þegar að ég lenti á Malboro. Ég tautaði með sjálfum mér “oh, flýja strax” en getiði hvað! ODIN, snillingurinn sá, kom, sá og sigraði og fyrir vikið fékk ég !!!!!!!!!!8!!!!!!!!!! Malboro Tentacle!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Plús það að ég var nýbúinn að fá 3 Malboro spjöld til viðbótar við þau 3 sem ég hafði svo að ég breytti 4 Malboro spjöldum í 1 Malboro Tentacle og átti þá 2 Malboro spjöld eftir. Ég notaði 2 Malboro Tentacle til að fá Red Scorpion (besta vopn Quistis!!!) , 1 til að láta Quistis fá Bad Breath í LB-ið sitt en síðast en ekki síst 6 MALBORO TENTACLE TIL AÐ FÁ GF DOOMTRAIN!!! Þannig að þessi skrambans FF-lukkudagur var fjári góður. Perfect í vopnum (allir með sitt besta) og kominn með öll GF-in. Plús Bad Breath í LB Quistis.

Árans lukka ;) :) :P<br><br>http://www.geocities.com/coolisti11