Stelpulegur!!! Þegar ég sá Zidane fyrst þá hélt ég að hann væri stelpa! Hann er með lítið nef og alltof stórt og verulega sítt hár (en final fantasy hárin eru bara alltaf þannig). Svo er hann með einhvern klút um hálsinn og bundna slaufu. Svo er hann í peysu sem rétt nær niður fyrir brjósthæð, lítur út eins og fáránlegur brjóstahaldari. Svo er hann í hvítum þröngum bol innan undir. Hann er í grænum þröngum buxum og gulu belti. Ofstórum stígvélum, Svo er hann í svörtum hönskum með græna stóra ermi. Sumt af þessu er ekkert stelpulegt en hann er ekki alltof strákalegur. Ég spurði vin minn (sem veit ekkert hvað final fantasy er) og hann sagði að þetta væri stelpa þegar hann sá hann fyrst. Ég hef líka spurt tvo aðra og þeir segja það sama. En það er líka margir sem segja að hann sé strákur. Aðalstelpulega við hann er þessi klútur með slaufunni og peysan.
<B>Azure The Fat Monkey</B>