Metal Gear Solid 2 demo! Já, þetta demó er alveg einstakt. Þá ert staddur á skipi og átt
að reyna að finna út hvert skipið stefnir, samt gerir maður meira
þegar að allur leikurinn kemur. Annars vegar eru grafíkin
frábær, rigninginn, skuggarnir, verðirnir og bara allt, samt
finnst mér FFX og GT3 skyggja á hann sem varðar grafík. Svo
eru verðirnir mjög gáfaðir og taka eftir öllu. Ef það heyrist hljóð,
sést skuggi og margt fleira, þá kígir hann á það og kallar
stundum á backup. Þótt að demóið sé á japönsku þá er enskur
texti.
Ég ætla ekki að segja söguþráðinn því að það er skemmtilegast
að finna það út bara sjálfur.
Demóið fylgir ZOE leiknum sem fékk lága dóma, þannig að þið
ákveðið sjálf hvort þið viljið eyða 5990kr í 20 mínútna demó.

Kveðja Sphere