FFX-2 (SPOILER DAUÐANS! Nema þú hefur klárað hann) Jæja… þá er X-2 kominn á Frónið og nú margir búnir með hann svo nú er bara að
bíða eftir XII :)

Ég byrjaði að spila leikinn með því að hlusta á “lag” sem hljómaði eins og einhver
hafi verið að hengja hest… manni er hent í bardaga án þess að vita neitt, maður er
alveg panic og rígheldur X-inu inni í von um að annað hvort Rikku eða Paine slátri
gaurunum á sviðinu fyrir framan þessar þúsundir áhorfenda… það hefði eiginlega
átt að vera myndband svipað byrjunarmyndbandinu í FF8… svo kemur eitthvað
bull um Garment Grid og maður er alveg “whuuut?!” og skilur ekkert… en maður
skilur seinna.

Siðan heldur maður áfram í leiknum og kemst að því að Special Dresspheres er
brjálað góð leið til að vinna erfiða kalla og alltaf lítur út fyrir að LeBlanc sé vondi
“kallinn” og Logos og Ormi (eða Slim og Fatso eins og ég kalla þá) séu svona eins
og Seifer, lap dog, en annað kemur á daginn… maður fattar allt um holurnar og
það, blablabla, brjálaðir Dark Aeon-ar í Heart of Farplane, blablabla, og svo
kemur soldið skemmtilegt, maður kemst í Farplane dótið sem var sýnt í X (þetta
með fossinum og blómunum og græna grasinu) og fer í Warp Hole dótarí sem
kemur manni á stað þar sem Omega er… svo kemur bjánalegt tónlistardót og þá
er maður kominn að Vegnagun. Ég hló mig í hel þegar það var sagt “YRP, go for
the tail!” svo vinnur maður það með Paine Special Dressphere og maður þarf að
vinna öll skítverkin fyrir hina… en finnst ykkur Shuyin ekki vera brjáluð
eftirherma? Eitthvað Terror of Zanarkand var Blitz Ace, Force Rain var Energy Rain
og Spin Cut var Spiral Cut og Cut & Run var Slice & Dice… en þegar það var búið
þá fékk maður bara fyrir hjartað… ÞVÍLÍK VÆMNI! Hann hélt að hún væri Lenne…
og svo endaði þetta með því að Nooj, Baralai og Gippal sögðu að “…very special
lady…” væri ekki viðstödd… svo komu YRP á Celsius og voru eitthvað að grínast…

En bara svona á skalanum 0-10, HVE VÆMINN VAR ÞESSI ENDIR?

LPFAN

PS. Munið eftir þegar Yuna segir við Shuyin “I love you” þegar Shuyin hélt að hún
væri Lenne ! Það var sko væmið i lagi !
PS2. Ef leikurinn ykkar endaði öðruvísi og þið sáuð þetta… sorry!
PS3. Ég kláraði X-2 með sirka 60%
PS4. Haldiði virkilega að það komi PlayStation 4? (Þið vitið, “PS4.” :P )

sami