Hidden drawpoints í ff8 Þegar ég var nýbúinn að klára ff8 þá fann ég síðu sem hét ff8 gurus, á henni var mikið af hlutum/upplýsingum um ff8. Ég notaði þessa síðu mikið þangað til hún hætti eða hvað gerðist. En allavega þá fann ég snilldar ff8 worldmap sem var yfirfullt af punktum, svipað og myndin sem fylgir með greininni nema það var allt mappið. Ég skildi ekki neytt í neynu uns ég fór að lesa hvað þetta væri, þessir punktar þýddu hidden drawpoints sem eru á worldmappinu en sjást ekki. Ég hafði fundið eitt svona drawpoint en það drawpoint var bara á augljósum stað, staðurinn var allur fjólublár og ég fattaði ekki neytt í neynu uns ég prufaði að hlaupa yfir staðinn dritandi á x, þá fann ég mitt fyrsta hidden drawpoint og varð mjög stoltur. En allavega þá er worldmappið fullt af hidden drawpoints og þessi drawpoint nýtast manni mjög vel þar sem þau fyllast eftir smá tíma og þetta eru líka góðir galdrar eins og aura og ultima ofl.

Á þessari síðu var líka hellingur af hlutum eins og hvernig á að finna ultima weapon og eden.
bauna