Crystal Chronicles grunnur Já hér kemur FYRSTA greinin mín svo ekki segja að hún sé léleg, annars fer ég í fílu finn hvar þið eigið heima og saga af ykkur tærnar(djók).

Það er spurning hvort að þetta flokkist undir \“spoiler\” úr því að mig grunar að þetta eigi eftir að standa utan á leiknum, þið ráðið hvort þið takið áhættuna.


Allavegna þá er ég með smá skot úr Crystal Chronicles. Það kemur framm í nafninu að leikurinn eigi eftir að snúast um kristal og galdra, og það gerir hann.
Sagan gerist í heimi sem er umlukinn eiturgufum, eina leiðin fólksins til að vernda sig gegn þessum gufum
er kristallinn. Kraft kristallsins þarf þó að endurnýa því að hann \“þornar upp\” árlega og þá þarf að koma með eitthvað galdravatn til að endurnýa kraft kristalsins.
Þú byrjar í leiknum með kallinn þinn (sem að ég held að þú getir valið kyn á) ásamt þrem öðrum félögum í litluþorpi og eru þau að byrja leiðangur sinn í leit að kristals galdravatninu.

Ef þið eruð með meira info, sendið inn ég er forvitinn.