Ég uppgötvaði fyrir stuttu trick í FFX sem er ansi hreint sniðugt. Maður þarf samt að vera kominn svo langt að hægt sé að berjast við dark Aeon-in.
Fara skal þar sem maður fékk Yojimbo (Cavern Of Stolen Fayth) og eins langt inn í hellinn og maður kemst. Síðan fer maður til baka og þá situr Dark-Yojimbo fyrir manni. Sigrið hann (ég nota alltaf Yojimbo og reyni að fá hann til að nota Zanmato) og farið að savesphere-inu og save-ið. Þar sem maður þarf að sigra Yojimbo oftar en 1x þá getur maður farið út úr leiknum og load-að aftur þar sem maður var nýbúinn að save-a og farið aftur innst í hellinn og síðan til baka og barist fyrsta bardagann við Dark-Yojimbo aftur. Með þessu trick-i getur maður sankað að sér fullt af góðum hlutum með því að sigra hann aftur og aftur.

Það getur vel verið að þið vitið af þessu, en ég vildi setja þetta hérna fyrir þá sem ekki vita.
Vonandi verður þetta að gagni.