Mínar aðferðir til að drepa aðalóvini. Ekki lesa leiki sem þið eruð ekki búin með

FFIV-Zeromous

Cecil slær með Crystal Sword eins og vitlaus maður. Riosa cure-ar eða notar White ef það þarf alls ekki að cure-a. Kain Jump-ar nema ef það þarf að cure-a hann. Þá verður hann að vera niðri. Edge slær ef hann er með Masamune og Murasame. Getur líka notað Blitz. Nota fyrst allt Shuriken, Ninja Stars og að sjálfsögðu Spoon sem gerir 9999dmg. Rydia summon-ar Bahamut.

FFV-Neo X-Death

Bara að læra ability eins og Coin Toss sem er frábært. Alla bestur galdrana svo sem Meteor og Flare. Láta alla vera í Normal Class þegar bardaginn byrjar. Þá hefuru mestu Hp-in, getur equippað fjögur ability og getur notað hvaða vopn sem er. Það er eina vitið. Hafa einn með Summon, annan með Black, einn og jafnvel tvo (eða alla með White). Auðvitað Coin Toss líka.

FFVI-Kefka

Bara að ná í Economizer og Gembox og gera Ultima, Ultima, Ultima. Og líka gera Summon. That’s about it.

FFVII-Sephiroth

Án gríns virkar 4x-Cut sjaldan á fyrsta. Jenova er náttúrlega bara aumingi. Ultima er ekkert það besta sem til er á fyrsta Sephiroth. Bara ef þú hefur ekkert annað. En hvað? Auðvitað bara Summon. Zero Bahamut, Neo Bahamut, Hades. Er þetta eitthvað flókið. Ekkert ósvipað þegar kemur að Savoir Sephiroth. Nota kannski Megalixer og Remedy eftir Super Nova. Til að vera í góðum málum.

FFVIII-Ultimacia

Láta alla vera með Item. Ekki Draw. Láta einn hafa Recover sem þú lærir með Leviathan. Nota cerberus á fyrstu. Og síaðn er hægt að nota GF-a. Ef hún gerir Dispel þá geri ég Triple og Double aftur. Nota Meltdown. Ég geri oftast Flare á hana. Fer bara rólega í hana. Líka ekkert að óttast. Og btw, Ultimacia lagið byrjaði um leið og ég byrjaði að skrifa um hana. Ótrúlegt.
Griever: Meltdown og Holy. Fylla orkuna eftir Shockwave-ið.
Ljóti kallinn: Meltdown og Water. Án gríns. Water. Svo má náttúrulega nota smá Ultima.
BrjóstaUltimacia: Nota Ultima. Nota Megalixer-a eftir sterk attack.

FFIX-Necron

Þarf smá heppni. Hafa Support Abilities á. Ehelst Status Nullifying Abilities ef þið skiljið mig. Nota Trance hjá Zidane. Kannski Aura með Amarant. Steiner að attack-a.

FFX-Braska’s Final Aeon
Reyna kannski að nota einhverja Aeon-a. Wakka gerir Overdrive til að drepa Yu Pagodas. Þeir lifna við með 9999 HP. Hafa Overdrive með öllum. Einfalt mál. Auron gerir Banishing Blade á guttann. Hastega er flott. Nota Talk bara þegar Overdrive-ið hans er næstum fullt. Bara hægt að nota það tvisvar. Nei heyrðu mig. Núna byrjaði Otherworld lagið úr FFX. Jesús. Þvílík tilvijun. Ég skipi og setti Slayers á.
Passa sig! Hann getur gert Overdrive sem drepur þig alveg þegar hann er kominn með sverðið. Janfnvel þó þú sért með Aeon. Vera fljótur að drepa hann. Hægt að nota Talk tvisvar í viðbót minnir mig.