Ekki hef ég sent inn margar greinar eða í raun er þetta held ég mín fyrsta svo að ég reyni að gera hvað ég get best….

Eftir að hafa unnið Ultima weapon í FFX þá fór var mér hugsað til fyrri Ultima Weapon í FF seríunum og fór að spá hvert þeirra var léttast og hvert þeirra var erfiðast og komst að þeirri niðurstöðu að mér fannst Ultima weaponið í FFX léttast, hmm allavega eftir að maður var kominn með Yojimbo sem getur drepið allt með einu helvítans höggi ( sem mér finnst persónulega bæði cool en líka algjör galli því að ekki í neinum FF leikjum á undan þessum gat ekkert Monster, GF eða what so ever drepið Ultima Weapon í einu höggi, svo common framleiðendur Leikjanna gerið leikinn aðeins erfiðari). En nú var ég kominn of langt út fyrir efnið so let's proceed.

Erfiðasta Ultima Weaponið fannst mér vera það sem var í FFVIII og skil ég ekki hvernig í fjandanum maður á að geta unnið það kvikindi.. Á tímabili var ég næstum búinn að taka diskinn og brjóta hann en þá man ég að þetta er Final fantasy leikur og eiga menn ekki að fara með þá svona.

Svo segið mér hver ykkur fannst léttastur eða erfiðastur og hvernig í Fja…. hvernig maður á að vinna Ultima Weapon í FFVIII.